Geislaði í teinóttri Michael Kors-dragt

Scarlett Johansson klæddist heillandi dragt frá Michael Kors.
Scarlett Johansson klæddist heillandi dragt frá Michael Kors. mbl.is/AFP

Leikkonan Scarlett Johansson bústaði elegansinum upp um nokkur númer þegar hún mætti í dragt frá Michael Kors á kvöldskemmtun eina í New York. Teinarnir í dragtinni eru glitrandi og síðir á köflum eins og sést þegar rýnt er í myndirnar. Eins og sjá má á dressinu er það ekki hefðbundið Hollywood-dress. Yfirleitt fara kvenkyns-stjörnur í það að sýna hold en Johansson fór aðrar leiðir þegar hún mætti í Tony-verðlaunin í New York í gær. Verðlaunin voru veitt í Radio City Music Hall. 

Eins og sjá má á dragtinni, sem hefur að geyma jakka og sítt pils með hárri klauf, sýnir hún ferska strauma þar sem innblástur er sóttur til níunda áratugarins. Takið eftir hvernig ermarnar eru rykktar í hliðunum og svo skartar hún þykku belti við jakkann. 

Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, hefur dálítið verið að vinna með tískustrauma þykkra belta og fengið lof fyrir. Johansson er ekki síðri með sitt þykka belti. 

Scarlett Johansson var förðuð á náttúrulegan hátt.
Scarlett Johansson var förðuð á náttúrulegan hátt. mbl.is/AFP
Þykk belti eru að komast í tísku.
Þykk belti eru að komast í tísku. mbl.is/AFP
mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál