Það verður ekki annað sagt um Serenu Williams en að hún sé stórglæsileg á forsíðu ágústútgáfu Vanity Fair en stjörnuljósmyndarinn Anna Leibovitz myndaði tennisstjörnuna nánast nakta.
Williams er ekki fyrsta stjarnan sem berar á sér bumbuna, Anna Leibovitz myndaði einnig Demi Moore árið 1991 fyrir forsíðu Vanity Fair líkt og Elle greinir frá.
Óléttumyndir hafa einnig ratað á forsíður tímarita á Íslandi en í fyrra birtist leikkonan og leikstjórinn Nanna Kristín Magnúsdóttir með myndarlega kúlu á forsíðu MAN.