Fyrirsætan Gigi Hadid var bleik frá toppi til táar þegar hún fagnaði gleraugnalínu sinni í bleikum og glansandi leðurbuxum og jakka.
Dressið kemur frá pólska tískumerkinu Kreist en Hadid hefur áður sést í fötum frá því samkvæmt Daily Mail. Fötin voru í anda 8. áratugarins en buxurnar voru mjög útvíðar og jakkinn stuttur með kögri á.