Búin að vera í sömu skónum í fjórar vikur

Pippa Middleton er búin að nota sömu skóna mikið síðan …
Pippa Middleton er búin að nota sömu skóna mikið síðan hún lagði af stað í brúðkaupsferð sína í maí. mbl.is/AFP

Pippa Middleton virðist ekki bara vera ástfangin af nýbökuðum eiginmanni sínum James Matthews heldur einnig espadrillusumarskónum sem hún virðist varla hafa farið úr síðan hún lagði af stað í brúðkaupsferð sína í maí. 

Espadrillurnar eru greinilega í miklu uppáhaldi hjá Pippu Middleton.
Espadrillurnar eru greinilega í miklu uppáhaldi hjá Pippu Middleton. mbl.is/AFP

Espadrillurnar eru með hefðbundnum botni en með smá hæl, svartar og ljósar og bundnar fyrir ofan ökkla. Samkvæmt E! Online eru hjónin komin heim úr brúðkaupsferðinni og sást til Middleton í espadrillunum um daginn í London en fyrst var tekið eftir skónum þegar hún klæddist þeim í brúðkaupsferðinni. 

Middleton hefur því verið dugleg að nota skóna hvort sem það er dags daglega eða við fín tilefni. En hún hefur meðal annars sést nota þá við kjóla, pils og þröngar gallabuxur. 

Pippa Middleton var í espadrillunum í Sydney. Borgin var einn …
Pippa Middleton var í espadrillunum í Sydney. Borgin var einn af viðkomustöðum hjónanna í brúðkaupsferð þeirra. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál