Í 200 þúsund króna kjól á tennisleik

Katrín missti ekki af Wimbledon frekar en fyrri daginn.
Katrín missti ekki af Wimbledon frekar en fyrri daginn. mbl.is/AFP

Fína fólkið missir ekki af Wimbledon-tennismótinu og það gerði Katrín hertogaynja ekki heldur en hún mætti í 200 þúsund króna kjól frá Dolce & Gabbana. 

Tennisleikararnir þurfa að klæðast hvítum fötum og hefur það líklega haft áhrif á fataval hertogaynjunnar. En stórar svartar doppur einkenndu þó hvítan kjólinn og því nokkuð ljóst að Katrín var bara áhorfandi en ekki þátttakandi. 

Við kjólinn var Katrín með tösku frá Victoriu Beckham en samkvæmt The Telegraph var hún líka með töskuna á mótinu í fyrra. 

Katrín mætti í hvítu enda einkennislitur Wimbledon-mótsins.
Katrín mætti í hvítu enda einkennislitur Wimbledon-mótsins. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál