Glæsileg í 150 þúsund króna kjól

Melania Trump klæddist látlausum kjól á meðan maður hennar, Donald …
Melania Trump klæddist látlausum kjól á meðan maður hennar, Donald Trump klæddist jakkafötum eins og venjulega. AFP

Forsetafrú Bandaríkjanna, Melania Trump, tók á móti hermönnum Bandaríkjanna og fjölskyldum þeirra á svölum Hvíta hússins í gær og óskaði þeim til hamingju með þjóðhátíðardaginn. 

Í tilefni þjóðhátíðar klæddist Trump dökkbláum aðsniðnum kjól hönnuðum af kólumbíska fatahönnuðinum Esteban Cortázar sem kostaði rúmlega 150 þúsund krónur. Forsetafrúin hélt fylgihlutum við kjólinn í lágmarki en eina skartið sem hún bar var giftingarhringurinn.   

Fyrir helgi klæddist Trump köflóttu pilsi og hvítri skyrtu á leið til golfvallar eiginmanns síns í New Jersey. Pilsið var rautt og hvítt eins og rendur ameríska fánans en kjóllinn sem hún klæddist á þjóðhátíðardeginum sjálfum blár eins og hluti ameríska fánans. Því má segja að þessi tvö dress vinni saman og myndi fána Bandaríkjamanna á þjóðlegan hátt.

Forsetahjónin buðu hermenn Bandaríkjanna og fjölskyldu þeirra velkomin á lóð …
Forsetahjónin buðu hermenn Bandaríkjanna og fjölskyldu þeirra velkomin á lóð Hvíta Hússins. AFP
Eini fylgihlutur Melaniu Trump var giftingahringur hennar.
Eini fylgihlutur Melaniu Trump var giftingahringur hennar. AFP
Melania Trump hefur klæst þjóðlegum fötum síðustu daga, líklega í …
Melania Trump hefur klæst þjóðlegum fötum síðustu daga, líklega í tilefni þjóðhátíðardags Bandaríkjamanna. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál