Stolt af húðlit sínum

Nyakim Gatwech breiðir út fagnaðarerindi um fjölbreytileika á Instagram.
Nyakim Gatwech breiðir út fagnaðarerindi um fjölbreytileika á Instagram. skjáskot/Instagram

Fyrirsætan Nyakim Gatwech hefur vakið mikla athygli á internetinu síðustu daga en Gatwech heldur úti Instagram-síðu þar sem hún talar fallega um húðlit sinn. 

Samkvæmt Daily Mail hefur Gatwech fengið viðurnefnið drottning myrkursins Queen of the Dark á ensku en hún boðar fagnaðarerindi fjölbreytileikans. 

Gatwech er stolt kona.
Gatwech er stolt kona. skjáskot/Instagram

Fyrirsætan sem er frá Suður-Súdan en býr í Minneapolis lenti í því einu sinni að uber-bílstjóri bauð henni tæplega eina og hálfa milljón íslenskra króna til að lýsa á henni húðina. Gatwech hló hinsvegar að honum og spurði af hverju í ósköpunum hún ætti að gera það. 

Gatwech notar Instagram-síðu sína til þess að berjast fyrir fjölbreytileika. „Elsku dökka húðin mín, sólsleikta litarhaft, brunna húð eða hvað sem þau kalla þig. Þú ert fáránlega falleg og ást mín á þér er skilyrðislaus af því að þú ert ég,“ skrifaði hún á Instagram. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál