Bachelorette-stjarna klæðist 66° Norður

Rachel tekur sig vel út í 66° Norður-úlpu sinni.
Rachel tekur sig vel út í 66° Norður-úlpu sinni. skjáskot/Instagram

Rachel Lindsay, núverandi piparmeyin í þáttaseríunni Bachelorette, klæddist 66° Norður-úlpu á stefnumóti sínu með Peter Kraus í svissnesku Ölpunum.

Kraus er einn af keppendum sjónvarpsþáttarins þar sem hann ásamt nokkrum öðrum körlum keppist um ást Lindsay.

Stílisti raunveruleikastjörnunnar birti mynd af henni í úlpunni og greindi frá því að þau hefðu fengið hana í 66° Norður.

Lindsay keypti úlpuna sjálf í 66° Norður-búðinni í Kaupmannahöfn. Úlpan ber nafnið Esja og kostar 69.000 krónur.   

Rachel Lindsay ásamt Peter Kraus á stefnumóti í Sviss.
Rachel Lindsay ásamt Peter Kraus á stefnumóti í Sviss. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál