Hertogaynjan sjaldan verið í jafnflegnu

Katrín hertogaynja breytti til og var í flegnum kjól.
Katrín hertogaynja breytti til og var í flegnum kjól. skjáskot/Daily Mail

Katrín hertogaynja hefur sjaldan verið í kjól með jafnflegnu hálsmáli og þegar breska konungsfjölskyldan tók á móti konungi og drottningu Spánar.

Katrín var í bleikum blúndukjól frá Merchesa samkvæmt Daily Mail. Hertogaynjan bar síðan stórt og mikið hálsmen sem passaði fullkomlega við flegið sniðið. Þetta val Katrínar hefur vakið athygli enda hún vön að vera í kjólum í íhaldssömu sniði og því lítið um flegin snið. 

Drottningarnar Letizia og Elísabet stilltu sér upp saman en það …
Drottningarnar Letizia og Elísabet stilltu sér upp saman en það má sjá glitta í Katrínu fyrir aftan þær. mbl.is/AFP

Þó svo að Katrín hafi breytt út af vananum passaði hún sig á því að stela ekki athyglinni frá Letiziu Spánardrottningu og hélt sig fjarri ljósmyndurum. En það má sjá glitta í hana í bakgrunni á myndum teknar voru af kóngafólkinu. 

Katrín er ekki þekkt fyrir að sýna mikið hold.
Katrín er ekki þekkt fyrir að sýna mikið hold. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál