Teiknar stjörnurnar með augnskugga

Emily Oliver er hæfileikarík.
Emily Oliver er hæfileikarík. ljósmynd/samsett

Í Oregon-ríki býr 15 ára stelpa sem teiknar áreynslulaust andlit stórstjarna á augnlokin sín með snyrtivörum.

Emily Oliver byrjaði að fikta með snyrtidót fyrst í febrúar á þessu ári, nú í júní tókst henni svo að teikna Rihönnu á augnlokið sitt með augnskugga og augnblýanti. 

„Það tók mig svona fjóra mánuði að læra að teikna á svona lítið pláss eins og á augnlokin,“ sagði Emily.

Það tók hana fjóra klukkutíma að klára andlitsmyndina af Rihönnu, sem var fyrsta myndin hennar, en næsta mynd sem hún gerði, af Beyoncé, tók aðeins tvo tíma.

Að sjálfsögðu er fólk á lýðnetinu að missa sig yfir hæfileikum Emily og fara myndir af förðunum hennar eins og eldur um sinu um netið.

Hægt er að fylgjast með Emily á Twitter-síðu hennar hér.

Hér teiknaði Emily mynd af Beyoncé.
Hér teiknaði Emily mynd af Beyoncé. Skjáskot/Twitter
Þetta er fyrsta mynd Emily en hún er af Rihönnu.
Þetta er fyrsta mynd Emily en hún er af Rihönnu. Skjáskot/Twitter
Skjáskot/Twitter
Skjáskot/Twitter
Skjáskot/Twitter
Emily teiknar ekki bara stjörnur heldur gerir einnig fugla, teiknimyndapersónur …
Emily teiknar ekki bara stjörnur heldur gerir einnig fugla, teiknimyndapersónur og blóm. Skjáskot/Twitter
Skjáskot/Twitter
Skjáskot/Twitter
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál