Melania Trump skiptir um stíl

Melania Trump í fallegum mynstruðum kjól frá Monique Lhuillier.
Melania Trump í fallegum mynstruðum kjól frá Monique Lhuillier. mbl.is/AFP

Melania Trump er þekkt fyrir að klæðast stílhreinum flíkum bæði hvað varða snið, efni og liti. Á dögunum breytti hún heldur betur til og klæddist hún kjól frá Monique Lhuillier með áberandi blómamynstri. 

Fataskápur frú Trump hefur þótt fremur einlitur hingað til og því hefur forsetafrúin ef til vill komið einhverjum á óvart í þessum kjól. 

Donald og Melania Trump.
Donald og Melania Trump. mbl.is/AFP

Samkvæmt Vogue er þetta þó ekki í fyrsta skipti sem forsetafrúin dregur fram mynstraðar flíkur, hún klæddist til dæmis hvítum kjól með fallegu mynstri í París um miðjan júlí. Það virðist því sem svo að forsetafrúin sé eitthvað að prófa sig áfram. 

Melania er að prófa sig áfram í mynstruðu flíkunum.
Melania er að prófa sig áfram í mynstruðu flíkunum. mbl.is/AFP

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál