Minntist Díönu í 200 þúsund króna kjól

Katrín klæddist sérlega fallegum blómakjól frá Prada.
Katrín klæddist sérlega fallegum blómakjól frá Prada. mbl.is/AFP

Katrín hertogaynja minntist Díönu prinsessu ásamt þeim Vilhjálmi og Harry í garði við Kensington-höll. Garðurinn heitir nú Hvíti garðurinn (e. White Garden) en á þessu ári var hann tileinkaður Díönu prinsessu. 

Þrátt fyrir að Lundúnarigningin hafi strítt Katrínu og bræðrunum lét Katrín það ekki hafa áhrif á fatavalið. Hún einfaldlega spennti regnhlífina og hlífði þar með fallegum blómakjólnum sem hún klæddist. Kjóllinn er frá Prada og kostar hátt í 200 þúsund krónur eða 1.420 pund

Þrenningin gerði sér ferð í garðinn með fulltrúum frá góðgerðarfélögum sem Díana prinsessa vann með en á morgun, fimmtudag, eru 20 ár síðan Díana dó í bílslysi í París. 

Katrín hertogaynja, Vilhjálmur og Harry.
Katrín hertogaynja, Vilhjálmur og Harry. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál