Stal yfirkennarinn stíl hertogaynjunnar?

Yfirkennarinn Helen Haslem veit hvar Katrín kaupir kjólana.
Yfirkennarinn Helen Haslem veit hvar Katrín kaupir kjólana. mynd/AFP/L.K. Bennett

Allra augu voru á yfirkennaranum Helen Haslem þegar hún tók á móti Georgi litla fyrsta skóladaginn hans í síðustu viku. Þó svo að skólinn hafi verið nýr fyrir Georgi kannaðist hann eflaust við fatastíl yfirkennarans enda var hún klædd í L.K. Bennett kjól, eitt eftirlætis merki Katrínar hertogaynju.

Bleiki kjóllinn sem Haslem klæddist heitir Amana og kostar 250 pund í netverslun L.K. Bennett eða um rúmlega 36 þúsund íslenskar krónur.

Katrín hertogaynja hefur mikið dálæti á L.K. Bennett og sést oftar en ekki í kjólum frá merkinu og L.K. Bennett hælarnir hennar eru í miklu uppáhaldi hjá hertogaynjunni. 

L.K Benn­ett er hálf­ís­lenskt fata­merki en eig­andi þess er Linda Krist­ín Benn­ett. Linda Kristín á bresk­an föður og ís­lenska móður.

Katrín hertogaynja í rauðum kjól frá L.K. Bennett.
Katrín hertogaynja í rauðum kjól frá L.K. Bennett. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál