Tattú flottasti fylgihluturinn

Angelina Jolie klæddist fallegum kjól sem sýndi tattú hennar afar …
Angelina Jolie klæddist fallegum kjól sem sýndi tattú hennar afar vel. mbl.is/AFP

Angelina Jolie vakti athygli fyrir glæsileika í Dior-kjól á frumsýningu myndarinnar First They Killed My Father í New York. 

Þrátt fyrir að leikkonan hafi skartað fallegum skartgripum má segja að tattúin hennar hafi stolið senunni. Kjóllinn sem var ermalaus og opinn í bakið sýndi tattúin hennar vel og segja má að þau hafi borið af af þeim fylgihlutum sem hún skartaði, það er að segja ef kalla má tattú fylgihlut. 

Jolie er með fjöldann allan af tattúum og hafa þau öll sérstaka merkingu. „Know Your Rights“ stendur efst á baki hennar en það er titill á lagi með uppáhaldshljómsveitinni hennar, The Clash. Hún fékk sér einnig tattú á bakið rétt fyrir skilnað sinn og Brad Pitt sem átti að hafa táknræna merkingu fyrir hjónaband þeirra.  

Angelina Jolie.
Angelina Jolie. mbl.is/AFP
Angelina Jolie er með mikið af húðflúrum.
Angelina Jolie er með mikið af húðflúrum. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál