Victoria Beckham sýndi línu sína fyrir vorið 2018 á tískuvikunni í New York. Mjúkir tónar voru áberandi í flíkum Beckham en hún vildi ná fram femínískum krafti í línunni.
Victoria Beckham er þekkt fyrir kvenleg föt og því má segja að þessi áhersla hjá henni í haust hafi ekki komið neinum á óvart. Sjálf var Beckham í hvítum bol og gallabuxum á tískusýningunni sem hún poppaði upp með sömu fjólubláu pinnahælunum sem margar af fyrirsætunum klæddust.