Korter í áttrætt með hárlengingar

Jane Fonda skartaði nýrri hárgreiðslu á Emmy-verðlaununum.
Jane Fonda skartaði nýrri hárgreiðslu á Emmy-verðlaununum. mbl.is/AFP

Jane Fonda verður orðin áttræð fyrir jól en hún lætur það ekki koma í veg fyrir að mæta í bleikum kjól með hárlengingar og topp á rauða dregilinn. 

Hárgreiðslan sem Fonda var með á Emmy-verðlaunahátíðinni sem fram fór um daginn vakti athygli. Leikkonan og leikfimisdrottningin var búin að setja hárlengingar í sig, slétta á sér hárið og komin með topp. 

Upp á síðkastið hefur Fonda skartað stuttu og liðuðu hári en það er spurning hvort að hún hafi verið að reyna gera sig unglegri með því að breyta hárstílnum enda oft yngri konur með hárlengingar og slétt hár. Hvort sem það er ástæðan eða ekki þá er það nokkuð ljóst að Fonda þarf ekkert að reyna að líta út fyrir að vera yngri en hún er enda stórglæsileg kona. 

Hár Fonda var liðað í Feneyjum fyrir skömmu og bar hún bæði uppsetta hárgreiðslu sem og afslappaða hárgreiðslu með hárið niður. Hvað finnst ykkur virka best fyrir Fonda?

Jane Fonda með afslappaða hárgreiðslu í Feneyjum.
Jane Fonda með afslappaða hárgreiðslu í Feneyjum. mbl.is/AFP
Jane Fonda með uppsett hár í Feneyjum.
Jane Fonda með uppsett hár í Feneyjum. mbl.is/AFP
Eru hárlengingar málið?
Eru hárlengingar málið? mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál