Þegar milljarðamæringur giftir sig

Karen og Lilt Karapetyn giftu sig með stæl.
Karen og Lilt Karapetyn giftu sig með stæl. skjáskot/Instagram

Karen Karapetyn, sonur rússneska milljarðamæringsins Samvels Karapetyans, gekk nýlega að eiga samfélagsmiðlastjörnuna Lilt. Eins og við er að búast þegar forríkur maður giftist konu sem hugsar um að allt líti vel á myndum voru fötin og skreytingarnar eins og úr bíómynd. 

Hjónin giftu sig í Moskvu og var brúðurin að sjálfsögðu í demantsprýddum brúðarkjól. Þó svo að kirkjan hafi verið vel skreytt blómum má segja að kirkjuskreytingarnar hafi ekki haft roð við skreytingunum í veislunni. 

Þúsundir blóma voru í veislusalnum; ekki aðeins á borðum og á veggjum heldur var loftið allt blómum skreytt. Það er nokkuð ljóst að Karapetyn-hjónin nýbökuðu eru ekki með látlausan smekk. 

Loftið var meira segja þakið blómum.
Loftið var meira segja þakið blómum. skjáskot/Instagram

#KarenLilit #KarenLilitWedding

A post shared by @vogue._.style on Sep 16, 2017 at 6:08pm PDT

#KarenLilitWedding #KarenLilit @aram_sargisovich @karapetyan_lilit_ @karapetyan_karen

A post shared by @vogue._.style on Sep 16, 2017 at 4:18am PDT






mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál