Hefur notað samskonar naglalakk í 19 ár

Elísabet Englandsdrottning er þekkt fyrir litríkan stíl.
Elísabet Englandsdrottning er þekkt fyrir litríkan stíl. AFP

Elísabet Englandsdrottning er þekkt fyrir að hafa litríkan smekk, en hún skartar jafnan skærum kjól eða dragt við fínlegan hatt og hanska.

Samkvæmt frétt Popsugar skartar drottningin síðan ávallt samskonar naglalakki undir hönskunum, en hún hefur haldið tryggð við lakkið undanfarin 19 ár.

Árið 1989 ritaði hárgreiðslumeistari Elísabetar stofnanda snyrtivöruframleiðandans Essie bréf, þar sem fram kom að eini liturinn sem hennar hátign gæti hugsað sér að nota væri liturinn „ballet slippers“. Sagan segir að drottningin hafi alla tíð síðan notast við lakkið, sem er ljósbleikt og passar við allt.

Eftirlætis litur drottningar nefnist Ballet slippers og er frá Essie.
Eftirlætis litur drottningar nefnist Ballet slippers og er frá Essie.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál