Eins og vanalega mætti mannréttindalögfræðingurinn Amal Clooney óaðfinnanlega klædd í veislu í Los Angeles um helgina. Clooney klæddist gylltum kjól frá Versace.
Clooney er að sjálfsögðu með puttana á púlsinum en gyllti liturinn hefur verið vinsæll að undanförnu. Gylltar flíkur eiga án efa eftir að lýsa upp íslenska skammdegið enda mikið um gylltar flíkur í búðum núna.
Kjóllinn minnti á tískusýningu Versace í Mílanó í lok september þar sem ofurfyrirsæturnar Carla Bruni, Claudia Schiffer, Naomi Campbell, Cindy Crawford og Helena Christensen komu fram í gylltum síðkjólum.