Kjóll Melaniu Trump kominn á safn

Melania Trump ásamt kjólnum góða.
Melania Trump ásamt kjólnum góða. mbl.is/AFP

Forsetafrú Bandaríkjanna, Melania Trump, gaf kjól úr sinni eigu á National Museum of American History. Forsetafrúin klæddist kjólnum á Frelsisdansleiknum sem haldinn var eftir innsetningu Donalds Trumps. Hefð er fyrir því að forsetafrúin gefi kjólinn sem hún klæðist á þessum viðburði. 

Kjóllinn sem um ræðir er glæsilegur hvítur síðkjóll sem hannaður var af fatahönnuðinum Havé Pierre. Pierra var viðstaddur þegar frú Trump gaf kjólinn. Það vakti hinsvegar athygli að Melania Trump var klædd í kjól frá Dolce & Gabbana í stað þess að klæðast hönnun Pierre. 

Donald Trump og eiginkona hans Melania Trump stigu dans á …
Donald Trump og eiginkona hans Melania Trump stigu dans á Frelsisdansleiknum sem haldin var í tilefni að innsetningu Trump. mbl.is/AFP

Pierra var að vonum upp með sér enda kjólasafnið vinsælt. Í Vogue talar hann vel um samstarfið við Melaniu Trump. „Ég skildi hvað hún hafði í huga, ferlið var einfalt af því að forsetafrúin þekkir tísku,“ sagði Peirre en hún starfaði sem fyrirsæta þegar hún kynntist Donald Trump. 

 

Kjólinn fór Melaniu Trump vel.
Kjólinn fór Melaniu Trump vel. mbl.is/AFP
Forsetafrúin ásamt Harve Pierra en hann hannði kjólinn.
Forsetafrúin ásamt Harve Pierra en hann hannði kjólinn. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál