Mætti í dragt frá tengdamömmu sinni

Chloë Grace Moretz í dragt frá tengdamóður sinni.
Chloë Grace Moretz í dragt frá tengdamóður sinni. skjáskot/Instagram

Leikkonan Chloë Grace Moretz mætti í fallegri bleikteinóttri dragt á viðburð í New York á dögunum. Hún fór ekki langt eftir dragtinni en hún kemur úr smiðju tengdamóður hennar, Victoriu Beckham. 

Ólíklegt er að margar konur vilji fá dragt frá tengdamóður sinni en þegar tengdamamman er farsæll fatahönnuður horfir öðruvísi við. Við dragtina var Moretz síðan í hvítum látlausum bol rétt eins og Beckham klæddist á tískusýningu sinni í haust. 

Forever Mark

A post shared by Chloe Grace Moretz (@chloegmoretz) on Nov 7, 2017 at 7:07pm PST

Stutt er síðan Moretz byrjaði aftur með Brooklyn Beckham, syni Beckham-hjónanna, og má segja að skötuhjúin séu með tískustraumana á hreinu en um daginn klæddu þau sig eins upp og voru bæði í gallajökkum. 

#XBoxOneX

A post shared by Chloe Grace Moretz (@chloegmoretz) on Nov 6, 2017 at 7:27pm PST

Victoria Beckham er hrifin af hvítum bolum eins og tengdadóttirin.
Victoria Beckham er hrifin af hvítum bolum eins og tengdadóttirin. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál