Glæsileg með bert á milli

Actress Jennifer Lawrence attends the 2017 Governors Awards, on November …
Actress Jennifer Lawrence attends the 2017 Governors Awards, on November 11, 2017, in Hollywood, California. / AFP PHOTO / VALERIE MACON mbl.is/AFP

Leikkonan Jennifer Lawrence átti rauða dregilinn í Hollywood um helgina þegar hún mætti í bert á milli dressi á verðlaunahátíð ásamt öðrum í þotuliði draumaborgarinnar. 

Þrátt fyrir að bert á milli hafi verið í tísku síðustu misserin hafa stjörnurnar ekki endilega verið að mæta svoleiðis á glerfína viðburði. Pilsið og toppurinn sem Lawrence klæddist er þó afar fágað enda koma fötin úr smiðju Söruh Burton hjá Alexander McQueen

Jennifer Lawrence í djörfum en um leið fáguðum klæðnaði.
Jennifer Lawrence í djörfum en um leið fáguðum klæðnaði. mbl.is/AFP

Bróderuð blóm eru á fötunum en það er eitthvað sem hefur verið vinsælt upp á síðkastið og voru fleiri leikkonur í slíkum fatnaði þetta sama kvöld. Leikkonan Margot Robbie var til að mynda í fallegum svörtum kjól með bróderuðum blómum og Helen Mirren var í glæsilegu svörtu pilsi, einnig með bróderuðum blómum. 

Margot Robbie.
Margot Robbie. mbl.is/AFP
Helen Mirren.
Helen Mirren. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál