Hillary Clinton er þekkt fyrir buxnadragtir sínar. Donald Trump sem klæðist hins vegar gjarnan jakkafötum klæddist óhefðbundnum skyrtum í opinberri heimsókn sinni í Asíu á dögunum. Athugull netverji kom auga á hversu líkur Trump var Clinton í skyrtunum.
Hillary Clinton klæddist hvítri dragt þegar hún keppti um Hvíta húsið við Donald Trump. Þegar Trump var kominn í kremaða skyrtu á Filippseyjum minnti hann á Clinton enda hárgreiðslan ekki ósvipuð.
Í Víetnam hitti forseti Bandaríkjanna forseta Rússlands, Vladimír Pútín þar sem þeir báðir klæddust hefðbundnum víetnömskum skyrtum í bláum lit. Netverjinn var ekki lengi að draga fram mynd af Hillary Clinton í blárri dragt.