Fötin sem koma þér á stefnumót

Sofia Vergara og Reese Witherspoon kunna að vekja á sér …
Sofia Vergara og Reese Witherspoon kunna að vekja á sér athygli. mbl.is/AFP

Það er ráðlegt að klæðast rauðum fötum ef markmiðið er að fanga athygli tilvonandi elskhuga.  Women's Health greindi frá Hayley Quinn sem gerði litla tilraun á rauða litnum en rannsóknir benda til þess að liturinn geri sitt gagn. 

Quinn gekk um London í rauðri kápu og upplifði það að þónokkrir menn byrjuðu að tala við hana. Hún segist vera í áfalli yfir hversu mörg hrós hún fékk frá ókunnugum þar sem nokkrir báðu um númerið hennar. Hún telur að þetta stafi af því að maður sker sig úr fjöldanum þegar maður klæðist rauðu. 

Hún prófaði þetta reyndar á netinu líka. Hún bjó til tvenns konar aðgang fyrir sig fyrir mismunandi stefnumótasmáforrit. Henni gekk mun betur í því forriti þar sem hún var klædd í rautt á forsíðumyndinni. 

Í rannsókn á gagnkynhneigðu fólki kom í ljós að konur klæddar rauðu voru taldar meira aðlaðandi. Meira segja konur sem héldu á rauðum hlut þóttu meira aðlaðandi en þær sem héldu á hlutum í öðrum litum.

Nicole Kidman í fallegum rauðum kjól.
Nicole Kidman í fallegum rauðum kjól. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál