Dragðu fram ljómann

Það sem einkennir góðar snyrtivörur er að þær nái að draga fram það besta í andliti konunnar. Þetta vita eigendur BECCA sem er splunkunýtt snyrtivörumerki hér á landi.

Vörurnar frá BECCA leggja áherslu á náttúrulega fegurð og að vörurnar aðlagist þínum húðlit. Ljómavörurnar frá BECCA hafa notið vinsælda úti í heimi og þess má geta að vatn er megin efnið í vörunum sem gerir það að verkum að farðinn frá þeim er mjög meðfærilegur.

Aqua Luminous Perfection-farðinn er léttur en á sama tíma með góða þekju. Ultimate Covarage Complexion Créme-farðinn er með aðeins þyngri formúlu en gefur manni þessa sömu léttu tilfinningu og Aqua Luminous-farðinn.

En hvernig fáum við fallega áferð á andlitið?

Byrjaðu á því að bera á þig farðagrunninn First light primer. Hann vekur húðina og jafnar misfellur. Skilur húðina eftir ferska, endurnærða og vakandi.

Þessi farðagrunnur er góður fyrir þær sem eru með þurra og þreytta húð og ójafna húðtóna. Hann birtir upp daufa og líflausa húð ásamt því að endurnýja húðina. Köld og létt formúlan gerir það auðvelt að dreifa úr kreminu á andlitið en hún er hálfgegnsæ og fjólublá á lit. Formúlan birtir húðina og jafnar misfellur. Farðagrunnurinn er fjólublár á lit þegar hann kemur úr umbúðunum en verður glær þegar hann er borinn á húðina.

Backlight primer-farðagrunnur hentar þeim sem eru með venjulega, feita, blandaða, þurra og viðkvæma húð. Hann frískar upp á þreytta og líflausa húð, dregur úr fínum línum og hrukkur ásamt því að jafna misfellur í húðinni.

Backligt Priming Filter-farðagrunnurinn hjálpar þér að undirbúa húðina fyrir farða og sér til þess að farðinn haldist óaðfinnanlegur fram á nótt. Formúlan er gerð úr þremur einstökum perlum þar sem hver og ein hefur sína tegund af ljóma. Sé þeim blandað saman kalla þær fram einstaka, létta og kremaða formúlu sem virkar eins og filter sem sléttir á þér húðina. Á sama tíma dregur E-vítamínsbætta formúlan úr fínum línum og hrukkum.

Shimmering skin perfector Liquid er fljótandi ljómakrem sem gefur húðinni samstundis þennan áreynslulausa og náttúrulega ljóma sem er svo eftirsóttur. Extra fína formúlan endurspeglast af perlum sem aðlagar sig húðinni þinni og gefur þér þennan heilbrigða og náttúrulega ljóma.

Shimmering Skin Perfector pressed er fljótandi Higlighter-púður sem kemur í þremur litum.

Þannig þú ræður hvaða áferð hentar þér best og kaupir hana. Það er líka mjög sniðugt að eiga Higlighter í vökvaformi til að blanda út í farða fyrir extra ljómandi útlit.

Shimmering Skin Perfector Pressed-ljómapúðrið virkar eins og sviðsljós fyrir húðina en púðrið birtir upp þína bestu eiginleika með einstaklega fallegum og náttúrulegum ljóma sem er innblásinn af glæsilegu síðdegissólinni. Þessi einstaka formúla er rík af ótrúlega fínum og ljómandi perlum sem endurspegla birtu til að magna upp þína náttúrulegu útgeislun og þau mörgu litarefni sem eru í perlunum stilla náttúrulegu undirtóna húðarinnar.

Ólíkt öðru ljómapúðri er formúlan í Shimmering Skin Perfector Pressed-ljómapúðrinu á þann hátt að litarefnum er blandað við vökva til að kalla fram óviðjafnanlega rjómakennda áferð sem berst á húðina líkt og silki.

Under Eye Brightening Corrector-litaleiðréttarinn felur dökka bauga og misfellur undir augnsvæðinu.

Formúlan er full af örfínum ljósgjöfum sem gerir það að verkum að hún sest ekki í fínar línur eða hrukkur. Heldur sléttir formúlan úr augnsvæðinu, undirbýr húðina fyrir hyljara og birtir upp augnsvæðið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál