Englar Victoria's Secret stigu á svið á tískusýningu undirfatamerkisins í Sjanghæ í Kína í dag, mánudag. Hver ofurfyrirsætan á fætur annarri í gekk tískupallinn í engum venjulegum undirfötum.
Fötin eru listræn og skrautleg. Fyrirsætur á borð við Bellu Hadid, Adriönu Lima og Alessöndru Ambrosio voru mættar til vinnu og virtust fyrirsæturnar skemmta sér vel á tískusýningunni eftir langan og stífan undirbúning.