Katrín hertogaynja er komin með litla og netta óléttukúlu og eru því ekki hvaða föt sem er sem henta þessar vikurnar. Í nóvember hefur hún verið dugleg að klæðast fötum frá breska merkinu Goat.
Goat er ekki sérstakt meðgöngumerki en fötin henta þó konum eins og Katrínu enda afar einföld og klassísk í sniðinu. Jane Lewis hönnuður Goat er hrifin af góðum kápum og því kannski ekki skrítið að Katrín sækist einmitt eftir kápunum hennar.
Í vikunni klæddist Katrín svartri kápu frá Goat Fashion sem hún klæddist einnig í New York árið 2014 þegar hún var einmitt ólétt af Karlottu prinsessu.
Katrín klæddist síðan ljósri kápu frá merkinu um miðjan mánuðinn sem hún er búin að eiga í að minnsta kosti fjögur ár. Kápan er hins vegar tímalaus og passar því enn vel í fataskáp hertogaynjunnar og er enn þá til sölu hjá Goat.
Þann 8. nóvember klæddist Katrín síðan rauðum kjól frá merkinu en hún hefur ekki sést áður í kjólnum. Kjóllinn er ekki ósvipaður kápunum tveimur, tímalaus og fágaður.
Fleiri þekktar konur hafa fallið fyrir tímalausu hönnun Lewis fyrir Goat en þær Victoria Beckham og leikkonurnar Keira Knightley og Sienna Miller hafa allar sést í fötum frá Goat.