Minnti á Elsu í Frozen í bláum kjól

Katrín hertogaynja minnti á Elsu í Frozen í bláum kjól.
Katrín hertogaynja minnti á Elsu í Frozen í bláum kjól.

Katrín heragaynja minnti á frægustu Disney-prinsessu síðustu ára þegar hún mætti í fallegum bláum síðkjól frá Jenny Packham á fjáröflunarsýningu í Palladium-leikhúsinu í London á föstudaginn. 

Ekki er hægt að komast hjá því að sjá líkindin með kjól hertogynjunnar og prinsessunnar. Fyrir utan það að báðir eru ljósbláir nær bláa efnið á báðum kjólunum aðeins upp fyrir brjóst. Á meðan létt og ljósara efni er í ermum Elsu er gegnsætt efni yfir öllum kjól Katrínar og þar með ermunum líka. 

Til þess að gera Jenny Packham-kjólinn enn glæsilegri er gegnsæja efnið fagurlega skreytt. Við kjólinn var Katrín í klassískum hælaskóm frá Oscar De La Renta. 

Katrín geislaði í glitrandi kjólnum.
Katrín geislaði í glitrandi kjólnum. mbl.is/AFP
Katrín hertogaynja.
Katrín hertogaynja. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál