Fullkominn farði fyrir frostið

mbl.is

Þegar kólna tekur í veðri er ekki nóg að klæða sig bara vel, við þurfum líka að hugsa um húðina og þá sérstaklega andlitið. Húðin þarf töluvert meiri vörn og raka í kaldara veðri og þegar vindurinn blæs. Eftir góða húðumhirðu verður því að fylgja rétt val á farða fyrir hvern og einn, hér eru 5 nýjar og jafnframt verulega vandaðar tegundir farða frá hinum ýmsu merkjum.

Þegar kólna tekur í veðri er ekki nóg að klæða sig bara vel, við þurfum líka að hugsa um húðina og þá sérstaklega andlitið. Húðin þarf töluvert meiri vörn og raka í kaldara veðri og þegar vindurinn blæs. Eftir góða húðumhirðu verður því að fylgja rétt val á farða fyrir hvern og einn, hér eru 5 nýjar og jafnframt verulega vandaðar tegundir farða frá hinum ýmsu merkjum.

Lingerie de Peau Aqua Nude farðinn frá Guerlain er með …
Lingerie de Peau Aqua Nude farðinn frá Guerlain er með SPF 20. Farðinn veitir húðinni nauðsynlegan raka yfir daginn sem svalar þorsta hennar til lengri tíma. Farðinn helst fallegur yfir daginn með sinn satínljóma. Farðinn inniheldur Hydrating Aqua Plump Complex sem þýðir að hann gefur húðinni ekki bara raka heldur fyllingu og þéttni. Hann er bæði fyrir venjulega húð og þurra húð. mbl.is
Sublinge Le Teint frá Chanel. Einstakur farði sem kemur í …
Sublinge Le Teint frá Chanel. Einstakur farði sem kemur í 30 g krukku, en með honum fylgir einstakur farðabursti sem á að nota með til að tryggja fullkomna loka útkomu. Burstinn er mjúkur og tryggir jafna áferð. Spaði fylgir einnig með en hann kemur í vef fyrir að fólk setji fingurnar ofan í krukkuna. Áferð farðans er kremkennd og ilmar léttilega af vanillu. Formúlan gefur frá sér allt að 12 tíma raka. Þessi farði hentar fyrir venjulega húð og blandaða húð. mbl.is
Foundation Plús+ frá Gosh er með SPF 15. Þetta er …
Foundation Plús+ frá Gosh er með SPF 15. Þetta er farði og hyljari í einni vöru sem gefur náttúrulegt útlit með þekju sem endist allan daginn. Formúlan er létt og hana er einstaklega auðvelt að vinna og þú getur farið sparlega með farðann. Farðinn inniheldur steinefni og raka frá þörungum, en þeir vinna einnig gegn öldrun húðarinnar. Farðinn er ilmefna- og parabenafrír og hentar fyrir allar húðtýpur. mbl.is
Syncro Skin Glow Luminizing Fluid Foundation frá Shiseido er með …
Syncro Skin Glow Luminizing Fluid Foundation frá Shiseido er með SPF 20. Þetta er léttur farði fyrir venjulega húð sem aðlagast fullkomlega og jafnar húðlitinn. Formúlan hylur það sem hylja þarf en á meðan er hún lauflétt og skilur húðina eftir í heilbrigðum ljóma. Farðinn er fyrir venjulega húð og blandaða. mbl.is
BB Skin Detox Fluid frá Clarins með SPF 25. Hið …
BB Skin Detox Fluid frá Clarins með SPF 25. Hið fullkomna BB krem fyrir blandaða húð hefur nú litið dagsins ljós. Farðinn er laufléttur við ásetningu, jafnar úr þinn húðlit og kemur húðinni í jafnvægi. Lokaútkoman er náttúruleg og gefur heilbrigðan ljóma. Þessi farði er fyrir allar húðtýpur. mbl.is
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál