Tískuárekstur í Buckingham-höll

Nígerísku hjónin og Elísabet Englandsdrottning voru í stíl.
Nígerísku hjónin og Elísabet Englandsdrottning voru í stíl. mbl.is/AFP

Elísabet Englandsdrottning tók á móti fulltrúa Nígeríu, George Adesola Oguntade, og eiginkonu hans í Buckingham-höll. Gestirnir mættu í fötum í stíl við kjól drottningarinnar. 

Drottningin var í klassískum kjól með munstri en grunnliturinn var í bleikfjólubláum tón. Nígerísku gestirnir mættu í þjóðlegum klæðnaði í afar svipuðum bleikfjólubláum lit. Ljósir litir lýstu síðan upp fatnað þeirra þriggja. 

Það má því með sanni segja að það hafi orðið tískuárekstur í höllinni þó svo að sniðið hafi verið afar ólíkt. Nú er bara spurning hver hafði betur, drottningin í sínum vestræna kjól eða þau nígerísku í afríska fatnaðinum?

Hjónin voru eins klædd.
Hjónin voru eins klædd. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál