Katrín og Díana völdu blómailmi

Katrín og Díana völdu brúðkaupsilmvötnin vel.
Katrín og Díana völdu brúðkaupsilmvötnin vel. Samsett mynd

Það muna margir eftir kjólunum sem Díana prinsessa og Katrín hertogaynja giftu sig í. Það muna hins vegar færri eftir ilmvötnunum sem þær voru með á stóra daginn. Marie Claire greinir frá því að blómailmur hafi verið valinu hjá þeim báðum.

Díana valdi uppáhaldsilmvatnið sitt, Quelques Fleurs frá Houbigant Paris. Díana er sögð hafa notað heldur mikið ilmvatn á brúkaupsdaginn sinn þar sem hún hellti ilmvatninu yfir kjól sinn. 

Quelques Fleurs frá Houbigant Paris.
Quelques Fleurs frá Houbigant Paris.

Katrín var með ilminn White Gardenia Petals frá Illuminum á brúðkaupsdaginn sinn þegar hún giftist Vilhjálmi Bretaprins árið 2011. Merkið varð afar eftirsótt eftir að tilkynnt var um ilm Katrínar og seldust allar 50ml. flöskur upp. 

Katrín valdi ilmvatn frá Illuminum.
Katrín valdi ilmvatn frá Illuminum.

Ilmvatnsáhugafólk bíður nú spennt eftir því hvaða ilmvatn Meghan Markle velur þegar hún giftist Harry Bretaprins í maí næstkomandi. Í gömlu viðtali segist Meghan vera mikil ilmvatnskona og ef hún fattar að hún hefur gleymt því að setja á sig ilmvatn eftir að hún er farin út úr húsi þá snýr hún við.

Uppáhalds ilmvötn hennar eru Côte d’Azur Eau de Parfum frá Oribe og Wild Bluebell og Wild Bluebell and Wood Sage& Sea Salt Colognes frá breska merkinu Jo Malon. 

Meghan Markle verður ef til vill með ilmvatn frá Jo …
Meghan Markle verður ef til vill með ilmvatn frá Jo Moalon á brúðkaupsdaginn. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál