Rihanna á fyrir salti í grautinn og vel það en söngkonan klæddist guðdómlegum en rándýrum Gucci sokkum á dögunum. Hægt er að kaupa sokkana á 1.340 dollara eða um 140 þúsund íslenskra króna.
Söngkonan fylgist vel með helstu tískustraumum og var að sjálfsögðu í hælaskóm við sokkana. Rihanna veit að það þýðir ekki að klæðast hvaða sokkum sem er í opnum hælaskóm. Því var ekki annað um að ræða en að klæðast kristalsskreyttum sokkum.
Þeir sem vilja ekki eyða hálfum mánaðarlaunum í sokka en vilja stela stílnum er sniðugt að fjárfesta í sokkum með glimmeri eða mynstri.