Smörtustu jólafötin 2017

Innovation House hélt fallegt jólaboð á dögunum. Hér gefur að …
Innovation House hélt fallegt jólaboð á dögunum. Hér gefur að líta Bjúgnakræki, Gunnhildi Arnarsdóttur CEO Huxun og Sesselju Vilhjálmsdóttur Tagplay.

Sú hefð að halda jólaboð í vinnunni er vinsæl um þessar mundir. Hvort sem um er að ræða Pálínuboð eða jólaskemmtun með dans og söng er eitt á hreinu og það er að mikil gleði og tengsl myndast í þessum boðum. Það sem við höfum tekið eftir og erum að dást að er hversu mikið er lagt í jólafatnaðinn á þessu ári.

Hér eru myndir frá jólaboðum Innovation House, Mannvits, Sambands íslenskra sveitarfélaga og TeqHire. Það fer ekki á milli mála að þetta eru frábærir vinnustaðir, þar sem traust, gleði og fögnuður ræður ríkjum fyrir jólin.

Okkur langar að halda áfram að fylgjast með myndum úr fyrirtækjum og biðjum áhugasama að merkja myndirnar á Instagram #jolapeysubod #smartlandmortumariu.

Við erum að leita að smörtustu jólafötunum í ár og ef þú setur # hér fyrir ofan getur þú dottið í lukkupottinn. Pro Gastró ætlar að gefa heppnum vel klæddum jólastjörnum svuntu, grænmetishníf, bleikan hníf og AMT grillpönnu!

Það tóku allir þátt í að elda góðgætið í jólaboði …
Það tóku allir þátt í að elda góðgætið í jólaboði Innovation House. Hér eru þau Ragnheiður Friðriksdóttir, Reykjavík Concierge, Gunnhildur Arnardóttir, CEO Huxun, Geir Gunnarsson, Vivaldi, og Íris, stofnandi Kúlu 3D.
Mannvit tekur jólaþemað alla leið og höfum við sjaldan séð …
Mannvit tekur jólaþemað alla leið og höfum við sjaldan séð lagt eins mikið í búninga eins og í þessu boði. Hér eru þau Örn Guðmundsson, Tandri Tryggvason, Steinar Geirdal, Ívar Már Jónsson og Sigrún Ragnu Ólafsdóttir.
Samband íslenskra sveitarfélaga er greinilega frábær vinnustaður. Hér eru þau …
Samband íslenskra sveitarfélaga er greinilega frábær vinnustaður. Hér eru þau Klara E. Finnbogadóttir, Valur Rafn Halldórsson, Telma Halldórsdóttir og Þórdís Sveinsdóttir fallega uppáklædd fyrir jólin.
Teqhire hélt fallegt jólaboð í Perlunni á dögunum. Hér er …
Teqhire hélt fallegt jólaboð í Perlunni á dögunum. Hér er einstaklega fallegur jólafatnaður á ferð. Á myndinni eru þau Kristján Pétur Sæmundsson, Kathryn Elizabeth Gunnarsson og Oddur Sturluson.
Starfsmenn Nýherja eru greinilega samheldin liðsheild. Hér er að okkar …
Starfsmenn Nýherja eru greinilega samheldin liðsheild. Hér er að okkar mati ein flottasta jólakjólaserían á þessu ári. Á myndinni eru: Anna Rut Steindórsdóttir, Þóra Regína Þórarinsdóttir, Hólmfríður Pálsdóttir, Berglind Lovísa Sveinsdóttir, Guðríður Margrét Vilhjálmsdóttir, Árdís Björnsdóttir og Iva Vucak.
Hvern langar ekki í þetta um jólin? Vel skreytt hjá …
Hvern langar ekki í þetta um jólin? Vel skreytt hjá Nýherja.
Það þarf ekki að taka langan tíma að skreyta jólatréð. …
Það þarf ekki að taka langan tíma að skreyta jólatréð. Hér hefur hagsýna húsmóðirin ráðið ríkjum. Myndin er úr Nýherja.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál