Meghan á sinn uppáhaldsvaralit

Meghan Markle er þekkt fyrir að nota ljósa og náttúrulega …
Meghan Markle er þekkt fyrir að nota ljósa og náttúrulega varaliti. AFP

Meghan Markle er mikið fyrir náttúrulega förðun og því ekki skrítið að uppáhaldsvaraliturinn hennar sé í „nude-lit“ en samkvæmt Hello er uppáhaldsvaraliturinn hennar Matte Revolution frá Charlotte Tilbury í litnum Very Victoria. 

Liturinn var nefndur eftir fatahönnuðinum og fyrrverandi Kryddpíunni Victoriu Beckham en svo vill til að Meghan hefur sést í fötum frá Beckham og er ekki ólíklegt að Beckham-hjónunum verði boðið í brúðkaup Harry og Meghan. Sienna Miller, Cindy Crawford og Amal Clooney eru einnig sagðar aðdáendur varalita frá merkinu. 

Matte Revolution í litnum Very Victoria.
Matte Revolution í litnum Very Victoria. skjáskot/Charlottetilbury.com

Föt sem Meghan hefur sést í hafa selst upp og hefur hún svipuð áhrif á snyrtivörur. Hello greinir frá því að sala á varalitum í náttúrulegum lit frá snyrtivörumerkinu MEMI hafi rokið upp um 65 prósent eftir að Meghan og Harry tilkynntu um trúlofun sína. 

Var Meghan annars með náttúrulegan varalit í viðtalinu þar sem þau sögðu frá trúlofuninni en ekki er ólíklegt að það hafi einmitt verið uppáhaldsvaraliturinn. Er hún lítið fyrir að skarta áberandi varalitum en spurning hvort hún geri undantekningu á brúðkaupsdaginn. 

Meghan Markle.
Meghan Markle. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál