Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, klæddist fölgulum kjól í heimsókn forsetahjónanna til Bretlands í vikunni. Stílisti forsetafrúarinnar, Herve Pierre, segir þau hafa valið litinn í sameiningu eftir að þau vissu að fölgulur væri eftirlætis litur drottningarinnar, Elísabetar II. Kjóllinn er frá merkinu J. Mendel og er sérsaumaður.
Kjóllinn er talinn minna á kjól Fríðu, úr Disney myndinni Fríða og dýrið. Það er því spurning hvort forsetafrúin sé að senda dulin skilaboð, því ef hún er Fríða, er Donald Trump þá dýrið?
Melania Trump hefur verið gagnrýnd fyrir fataval sitt síðustu mánuði en jakki sem hún klæddist í landamærabúðaheimsókn forsetahjónanna. Aftan á jakkanum stóð „Mér er alveg sama, hvað með þig?“. Jakkinn þótti gríðarlega óviðeigandi en Melania hefur tekið fyrir það að einhver dýpri merking hafi verið á bakvið valið á honum.