Það er hægt að gera margt heimskulegra en að takast á við skammdegið með því að lita hárið ljóst. Forsetafrú Bandaríkjanna lýsti hár sitt á dögunum en hún hefur ef til vill viljað breyta aðeins til fyrir jólin. Nýi hárliturinn breytir útliti hennar töluvert.
Frú Trump var við það að líkjast ljóshærðri Barbie-dúkku í sjónvarpsviðtali í vikunni og gerði fólk því miður óspart grín að henni. Spurðu netverjar sig hvort hún væri að safna í hárkollu fyrir eiginmann sinn en Donald Trump er þekktur fyrir óvenjuþykkan og -ljósan makka miðað við aldur.
Kannski er forsetafrúin einfaldlega orðin þreytt á dökka hárinu sem hefur verið hennar einkennismerki undafarin ár.