Ég er hræddur við líkamsræktarstöðvar
Þórarinn Þórarinsson, blaðamaður á Fréttatímanum, hefur aldrei stungið fæti inn í líkamsræktarstöð og borðar sjaldan á daginn. Hann er þó með góð gen og þegar hann puntar sig tekur hann niður gleraugun og skellir í sig daglinsum.
Hvað gerir þú til að halda þér í formi?
Eiginlega ekki neitt. Ég er svo heppinn að geta sleppt því að borða í átta klukkustundir á dag eða svo og nægir ein máltíð sem er yfirleitt skinkusamlokur með osti, hamborgarar, pitsur, pastaréttir með ostasósum og nautasteikur með bernaise þegar ég á pening. Drekk svo svona 2 lítra á dag af kóki og bleksvörtu kaffi og er samt undir kjörþyngd og hef alltaf verið. Ég er hræddur við líkamsræktarstöðvar og hef aldrei stigið fæti inn á þannig stað en reyni að synda reglulega. Sundið er eina hreyfingin sem ég stunda.
Er einhver matur sem þú borðar ekki eða fer illa í þig?
Ég þoli ekki grænmeti og ávexti og forðast allt slíkt. Sérstaklega tómmata og agúrkur. Ég kúgast bara við tilhugsunina.
Ertu hættur að borða eitthvað sem þú borðaðir áður?
Nei. Eins og kemur fram hér að ofan þá er mataræði mitt mjög einhæft og hefur verið það undanfarna tvo áratugi. Ekkert hefur farið út og fátt nýtt komið inn.
Hvað gerir þú til að líta betur út?
Rétt eins og með formið er ég svo heppinn að vera fagur og unglegur frá náttúrunnar hendi og þarf lítið að hafa áhyggjur af útlitinu. Ég klessi samt geli í hárið á morgnana og þegar ég vil vera ógeðslega töff og sætur sleppi ég gleraugunum og nota daglinsur. Ég er líka frekar montinn af sjaldgæfu brosi mínu og beinum tönnunum þannig að ég reyni að hirða vel um þær, og skafa tóbaksslikjuna af þeim með öllum ráðum svo þær séu nú hvítar og fallegar. Síðan plokka ég auðvitað augabrúnirnar reglulega og er kominn á þann aldur að ég verð að hafa gætur á hárvexti í nösum og eyrum. Sem sagt alltaf með plokkarann á lofti. Þetta er eiginlega helsta vandamálið sem fylgir því að vera einhleypur. Konurnar mínar sáu alltaf um þetta hér áður fyrr.
Hvert er ódýrasta fegrunarráðið?
Ég þarf svo lítið að spá í þetta og þekki engin sérstök ráð en í mínu tilfelli væri það að hætta að reykja. Þá haldast tennurnar hvítar og ég er ekki jafn grár, gugginn og þreytulegur. Þetta er samt ekki beint ódýrt ráð heldur meira bara hreinn gróði upp á 30-40 þúsund krónur á mánuði.
Lumar þú á einhverjum leynitrixum varðandi útlitið?
Með jafn stór og falleg blá augu og ég er með þarf ég engin leynitrix.
Hvað er að finna í snyrtibuddunni þinni?
Ég er nú alvör karlmaður og á ekki „snyrtibuddu“ en ég er með svona „mans bag“ eins og við Joey í Friends köllum það. Þetta er tuskuleg, hermannagræn hliðartaska sem inniheldur allt sem ég þarf til að komast af í leik og starfi: skrifblokk, penna, upptökutæki, eitt par af daglinsum, íbúfen, tissjú, smokka, hleðslusnúru fyrir iPhone-inn, tvö Prins Póló, Blistex-varasalva og eitthvað svona smotterí.
Hvaða snyrtivöru gætir þú ekki lifað án?
Hárgelsins, 8x4 roll-on svitalyktareyðis og rakspíra en í þeirri deild nota ég mest Boss, Diesel, Gucci og Versace. Nota Dieselinn eða Versace þegar ég vil vera virkilega sexí. Svo var ég að eignast Biotherm Homme-dagkremið sem á víst að fríska mann upp á sekúndubroti. Í því er ginseng og einhver alls konar geggjuð efni. Var að setja það á mig í fyrsta skipti í morgun og á kannski eftir að verða háður því.
























