Jessica Biel segir heilbrigða húð vera lykilatriði

Jessica Biel. stækka

Jessica Biel. mbl.is/Cover Media

Leikkonan Jessica Biel trúir því að húðin endurspegli innri heilsu fólks.  Leikkonan er þekkt fyrir ótrúlega fallegt litarhaft sitt og náttúrulegt yfirbragð.  Leikkonan hugsar vel um húðina svo að hún ljómi og geisli.  „Húðin endurspeglar innri heilsu svo ég reyni að borða vel, drekka mikið og hreyfa mig reglulega,“segir Biel.

„Ég fer líka mánaðarlega í andlitsbað sem samanstendur af náttúrulegum ávaxtasýrum og nuddi.  Auk þess nota ég Imedeen-húðvörurnar.“ 

Biel segir þó frá því að fegrunarathöfn hennar sé tiltölulega einföld.  „Ég nota mildan hreinsi á morgnana og svo rakakrem.  Sólarvörn er algjört lykilatriði,“ segir Biel. 

Biel reynir að viðhalda náttúrulega útliti sínu.  Þegar kemur að hári kýs hún einnig að fara einföldu leiðina.  „Ég er hjá frábærri hárgreiðslukonu í Los Angeles.  Hún blandar saman litnum og mínum eigin tónum sem gerir það að verkum að hárið vex án þess að ég fái mikla rót.  Það hentar mér fullkomlega þar sem ég er hræðilegur viðskiptavinur og mæti bara nokkrum sinnum á ári,“ segir hún í viðtali við Health & Beuaty-magazine.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Trönuberjalitaðar varir hjá Gucci

Trönuberjalitaður varalitur setti svip sinn á haust- og vetrarlínu Gucci.
18:00 Ítalska tískuhúsið Gucci sýndi dökka og dularfulla förðun þegar fyrirsæturnar þustu um tískupallana í gær.   Meira »

Krullujárnið heitt og greiðan í vasanum

Bylgjur eru málið í hárið.
í gær Hártískan í sumar einkennist af mjúkum og þokkafullum línum. Þungir toppar og bylgjugreiðslur eru vinsælar. Herrarnir greiða hárið og snyrta skeggið. Meira »

Endurnýjun húðarinnar

Skin Doctor.
14:00 Vörurnar frá Skin Doctors leitast við að brúa bilið milli hefðbundinna húðvara og lýtaaðgerða. Vörurnar hjálpa til við endurnýjun húðarinnar sem veitir henni unglegra og ferskara útlit. Meira »

Litríkar neglur

Litríkar neglur.
í gær Á vorin springur gróðurinn út og litagleðin sömuleiðis. Litríkt nagnalakk sem tekið er eftir er frábær leið til að lífga upp á útlitið og þar má spila djarft, einkum við látlausan klæðnað. Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is