Öryggisverðir gættu nakinna fyrirsætna

Mynd 1 af 2
Sara Bergmann stundar nám í New York um þessar mundir. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Sara Bergmann dvelur um þessar mundir í New York þar sem hún stundar sérstakt förðunarnám fyrir sjónvarp og kvikmyndir í Make-Up Designory, sem er í SoHo. Með náminu hefur hún komist í ýmis spennandi verkefni og lent í fjölmörgum ævintýrum. Hún farðaði til dæmis fyrir tískuvikuna í New York í september og fyrir tónlistarmyndband sem mikil leynd hvílir yfir ennþá. Auk þess hefur hún farðað dansara Beyoncé sem lék stórt hlutverk í myndbandinu Single ladies. Hún hefur hnotið um mikið af frægu fólki á ferð sinni um borgina. „Ég sá Katie Holmes og litlu Suri á tískuvikunni og svo hef ég rekist á Victoriu Beckham, Siennu Miller, Adrian Brody og Jesse Eisenberg svo einhverjar stjörnur séu nefndar. Það er ekki óvanalegt að rekast á einhvern frægan,“ segir Sara. Á dögunum vann hún með förðunarmeistara sem sá um Söruh Jessicu Parker, þegar hún fór með hlutverk Carrie Bradshaw í Beðmálum í borginni. „Hún sagði að Sarah Jessica Parker væri alveg hreint yndisleg. Hún væri ekki með neina stjörnustæla og engar sérþarfir varðandi förðunina.“

Vinkona Söru farðaði fyrirsæturnar á síðustu Victoria‘s Secret-tískusýningu og fékk hún að vita hvernig þær voru farðaðar fyrir þessa stóru sýningu. „Tom Pecheux, aðal „ make-up artistinn“ vildi að förðunin væri eins náttúruleg og hægt væri. Svona „no makeup makeup“. Til að fá rétta áferð á andlitið var Victoria's Secret tinted moisturizer og bronzer blandað með Estée Lauder-farða. Það var til þess að fá fallega áferð, alls ekki glimmerlega eins og var í fyrra. Síðan var settur svona ekta kisu eye-liner í kringum augun. Pecheux vildi að það væri næstum ekkert gert við augabrúnirnar og síðan var varalitur frá Estée Lauder notaður og Victoria's Secret gloss sett yfir þannig að varirnar yrðu mjög ljósar,“ segir Sara. Hún segir að Face and Body Foundation frá MAC hafi verið notað á líkamann og hafi litur númer C6 orðið fyrir valinu. „Það fór næstum því heill brúsi á hverja fyrirsætu,“ segir hún.  Út í Face and Body Foundation var sett Laguna Illuminator frá Nars til að fá fallegan ljóma á húðina. Auk þess var sett ógurlega fín olía á líkama fyrirsætnanna sem heitir Rodin Olio Russo. Sara segir að þessi olía sé rándýr og að pínulítil flaska kosti 140 dollara.

„Fyrirsæturnar voru farðaðar frá toppi til táar. Öll húðflúr, hrukkur og ör voru falin með hyljara. Þær voru með allskonar „galla“ sem voru huldir með farða. Fyrirsæturnar voru farðaðar í litlum herbergjum og voru öryggisverðir fyrir utan til að passa upp á þær en fyrirsæturnar voru allar naktar meðan verið var að farða líkama þeirra.  Til þess að þær líti sem best út eru þær farðaðar með 2-4 sinnum dekkri lit en hún þeirra er í raun og veru. Það kemur betur út á sviðinu og vilja þær helst vera eins brúnar og hægt er,“ segir Sara. Sjálf segist hún hafa ímyndað sér að fyrirsæturnar væru farðaðar og skyggðar til að ýkja magavöðva og fleira en það var ekki gert. „Magavöðvarnir eru alveg ekta enda voru þær allar búnar að vera á fullu í ræktinni fyrir sýningu,“ segir hún og hlær.

„Það var alveg rosa stemning baksviðs og módelin alveg eins og rokkstjörnur. Adriana Lima var aðalstjarna kvöldsins og alltaf þegar hún steig á sviðið urðu allir áhorfendurnir vitlausir! Svo voru allar stjörnurnar þarna baksviðs eins og Kanye West, Jay-Z og Beyoncé, Nicki Minaj og Maroon 5. Þeim þótti örugglega ekki slæmt að vera umkringd öllum þessum Victoria's Secret-fyrirsætum.“

Spurð um sína uppáhaldsförðun nefnir Sara sterka varaliti.
„Mér finnst mjög gaman hvað stelpur eru farnar að vera óhræddar við að vera með sterkan varalit. Gloss er eiginlega alveg dottinn út og varalitur kominn í staðinn. Það er hægt að nota varalitinn á svo marga vegu. Rétt dúmpa honum á með fingrinum til þess að gefa vörunum örlítinn lit eða setja hann vel á og fá sterkan lit. Falleg og frískleg húð og náttúrulega útlitið er líka mjög vinsælt þessa dagana,“ segir Sara.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Ljómaðu í rigningunni

Sólarpúðrið frá Chanel er röndótt og því hægt að stýra hversu mikið og dökkir litir ...
25.5. Sólarpúður hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár. Það er kannski ekkert skrýtið þar sem kvenpeningnum veitir stundum ekki af smáljóma í andlitið í rigningunni og rokinu. Meira »

Ilmaðu eins og vorsins blóm

Ilmvatnslínan Flora by Gucci er duðdómlega vel lyktandi og falleg.
17.5. Það væri óskandi að það væri hægt að finna lykt í gegnum tölvuskjáinn því þá mynduð þið skilja fullkomlega nýju ilmvatnslínuna frá Gucci. Meira »

Nýju sumarlitirnir frá OPI

Hot and Spicy.
18.5. Svarta shatter-naglalakkið fullkomnar verkið.  Meira »

Aðhaldshandleggir nýjasta nýtt

Aðhaldshandleggir.
16.5. Nú er ný aðhaldsflík komin á markað sem grennir handleggina svo um munar.   Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is