Skotheldur farði fyrir þær sem vilja geisla

Mynd 1 af 2
Nýji farðinn frá Guerlain,Lingerie de Peau, gefur sérstaklega fallega áferð.

Ef þú vilt hafa létta áferð á húðinni og ekki líta út fyrir að vera með farða, en vera samt svaka sæt, þá er þessi málið. Farðinn Lingerie de Peau frá Guerlain inniheldur bæði farða í föstu formi og hyljara sem er örlítið ljósari en farðinn sjálfur.

Auðvelt er að bera farðann á sig. Með fylgir svampur en það er líka ferlega gott að nota meikbursta og bera farðann á með honum. Þegar hyljarinn er settur á má nota lítinn hyljarabursta eða bara puttana.

Þetta farða-kitt hentar sérstaklega vel fyrir konur sem nenna ekki að líta í spegil mörgum sinnum á dag. Farðinn endist lengi og ef þú berð hann á á morgnana ertu góð allan daginn. En fyrir þær sem vilja hafa farðann alltaf meðferðis þá kemur hann í hentugum umbúðum og passar vel í veski.

Til þess að fullkomna útlitið er frábært að setja örlítið Reflex Cover frá Make Up Store yfir baugana og niður á kinnar, ekki samt þannig að það komi skil og örlítið steinefnapúður frá Make Up Store yfir. Þá færðu þennan ljóma í húðina sem er svo eftirsóknarverður og öll þreytumerki eru á bak og burt.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Ljómaðu í rigningunni

Sólarpúðrið frá Chanel er röndótt og því hægt að stýra hversu mikið og dökkir litir ...
25.5. Sólarpúður hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár. Það er kannski ekkert skrýtið þar sem kvenpeningnum veitir stundum ekki af smáljóma í andlitið í rigningunni og rokinu. Meira »

Ilmaðu eins og vorsins blóm

Ilmvatnslínan Flora by Gucci er duðdómlega vel lyktandi og falleg.
17.5. Það væri óskandi að það væri hægt að finna lykt í gegnum tölvuskjáinn því þá mynduð þið skilja fullkomlega nýju ilmvatnslínuna frá Gucci. Meira »

Nýju sumarlitirnir frá OPI

Hot and Spicy.
18.5. Svarta shatter-naglalakkið fullkomnar verkið.  Meira »

Aðhaldshandleggir nýjasta nýtt

Aðhaldshandleggir.
16.5. Nú er ný aðhaldsflík komin á markað sem grennir handleggina svo um munar.   Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is