Smartland Mörtu Maríu
|
Útlit
| Cover Media
| 13.1.2012
| 21:47
Líður eins og Barbie
Jennifer Hudson er enn að venjast því að hún er nú 40 kílóum léttari en áður. Henni líður oft eins og Barbie-dúkku og liggur stundum uppi í rúmi á kvöldin og veltir því fyrir sér í hvað hún eigi að klæða dúkkuna daginn eftir. Hudson er stolt af nýju útliti sínu og segir líf sitt hafa gjörbreyst, núna elski hún tískufatnað.
Í viðtali við Stylelist.com segir söng- og leikkonan að líkamsþyngd hennar hafi áður fyrr stjórnað fatavalinu og takmarkað hverju hún gat klæðst. Núna geti hún valið sér nánast hvaða föt sem er og liðið vel. Viðbrigðin, að geta skipt um föt að vild, verði þess stundum valdandi að henni líði eins og hún sé að leika sér með Barbie-dúkku.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























