Djöfullinn er sólginn í afskorið skegg
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is
Alskeggjaðir ungir menn eru nú æ algengari sjón hér á landi og ekki ólíklegt að fyrirmyndirnar séu menn eins og Mugison sem státar af miklu og ræktarlegu skeggi. Einnig má nefna piltana í Hjálmum, Högna í Hjaltalín, President Bongo í Gus Gus, Hamarinn Óttar Proppe og Emil Þór Guðmundsson reiðhjólasnilling. Tveir skeggprúðir menn skottast um í verslun einni í Reykjavík og hafa þónokkra skoðun á fyrirbærinu skeggi og annar þeirra vinnur auk þess við að skera skegg.
Hér áður fyrr voru menn álitnir myndarlegri eftir því sem þeir höfðu þykkari skeggvöxt. Það er tiltölulega nýtilkomið að menn séu að raka sig,“ segir Stjúri sem er sérlega hár- og skeggprúður maður. Hann sér um að snyrta hárvöxt í andliti og á höfði þeirra sem setjast í stólinn hjá honum í rakarahorninu í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar. „Áður fyrr voru karlmenn álitnir aumingjar ef þeim óx ekki skegg. Njáll á Bergþórshvoli var kallaður taðskegglingur vegna takmarkaðs skeggvaxtar. Það er vart til verri móðgun.“
Ekki kalt í framan í frosti
Stjúri segist hafa predikað alskegg í mörg ár. „Ég hvet alla karla til að safna skeggi, jafnvel þó þeir haldi að það fari þeim ekki vel. Málið er að hver og einn þarf að finna sinn stíl í skeggi. Ég hef ekki rakað mig síðan árið 1996 og hef verið með ýmsar útfærslur á skeggi mínu á þessum fimmtán árum. Svo eru þetta augljós þægindi á köldu landi eins og hér, skeggjuðum mönnum verður ekki kalt í framan í frosti,“ segir Stjúri og bætir við að sitt fyrsta verk sé ævinlega að lesa upp ýmsan fróðleik um skegg þegar menn komi í stólinn til hans. „Hér stendur meðal annars að breitt skeggstæði sé talið merki um mikinn viljastyrk,“ segir hann og blaðar í bæklingnum góða. „Og hér stendur líka að djöfullinn sé sólginn í afskorið skegg, því hann noti það til að ná valdi yfir sálum okkar. Það er því full ástæða til að leggja af þann sið að skera skegg sitt.“
Naktir án skeggsins
En þeir eru fleiri í herrafataversluninni sem skarta myndarlegu alskeggi. Innanbúðardrengurinn Georg Kári Hilmarsson hefur verið meira eða minna með alskegg frá því árið 2006. „Konan mín var svolítið efins þegar ég sagði henni að ég ætlaði að láta mér vaxa skegg, en núna finnst henni þetta æðislegt. Ef hún sér mig skegglausan, þá fer hún hjá sér,“ segir Georg og bætir við að þeim sem hafi verið með skegg um tíma, finnist þeir óneitanlega nokkuð naktir án skeggsins. „En ég læt allt skeggið fjúka einu sinni á ári, á vorin. Þess á milli sér Stjúri um að snyrta það til.“ Georg segir að það að láta sér vaxa skegg sé að einhverju leyti leið karlmanna til að aðgreina sig frá hinu kyninu. „Ef við værum alltaf skegglausir og mjög snyrtilegir þá værum við komnir of nálægt konunum. Að láta sér vaxa skegg er líka ágætis mótvægi við kröfu nútímans í herratískunni um að vera mjög fínir og snyrtilegir.“
Nauðrakaðir bankamenn
Georg segir að þetta tengist karlmennskunni af því að í nútímanum sé hún svo mikið á reiki. „Karlmenn ganga núorðið með hliðartöskur og bankamenn árið 2007 eyddu trúlega fúlgum fjár í krem og snyrtivörur og voru nauðrakaðir. Við sjáum hvaða áhrif það hafði á efnahagslífið. Nú þarf að hverfa til gamalla og góðra gilda og safna skeggi. Karlmenn eru að átta sig á að það er alveg kominn tími til að snúa þessu við. Við viljum fá að vera alvöru villtir karlmenn, er það ekki það sem konur vilja?“
Stjúri segir að það sé ekkert annað en skeggöfund þegar konum finnist skegg ljótt eða ógeðslegt.
Seinkominn þroski
En skeggvöxtur er mjög misjafn hjá mönnum. Sumir eru með mjúkt og gisið skegg en aðrir með gróft og þétt. „Vini mínum Dóra DNA vex erfiðlega skegg en hann þrjóskaðist við og það tók hann ár að ná sæmilegu skeggi. Núna eru skallablettirnir í skegginu hjá honum loksins horfnir. Þetta getur krafist þolinmæði og mann klæjar líka fyrst. Margir fá ekki almennilegt skegg fyrr en seint á ævinni. Stundum er þetta seinkominn þroski,“ segir Georg.
„Þegar ég verð gamall vil ég sjá sem flesta karla með sítt, hvítt og gerðarlegt skegg, eins og afi minn var með. Hann var með snyrtilega herraklippingu á kollinum og þetta fór svo vel saman. Ég ætla að vona að ég öðlist meiri skeggvöxt með árunum svo ég geti orðið eins og afi,“ segir Stjúri dreyminn.
TÖFF EÐA EKKI?
Já, já, meira hár, meira hár......
Sigmundur kenndur við Kastljós skellti eftirfarandi fram á Fésbók sinni:
Karlmenn með alskegg eru orðnir jafnalgengir og milletúlpurnar og buffalóskórnir voru í denn. Töff?
Og hann fékk ýmis ólík viðbrögð:
Skegg er vibbi.
Skeggtízkan á Íslandi er á sterum!
Það þarf sérstaka týpu til að bera alskegg. En almennt séð finnst mér það synd þegar annars myndarlegir menn fela sig á bakvið skegg.
já já já! mikið skegg, mikið hár, loðnar bringur, læri og arma, luv it! meira hár, meira hár, meira hár....
Hrikalega töff !!
Alveg óþolandi Amish lúkk!!
Alvöru konur fíla alvöru karlmenn! Og alvöru karlmenn eru með skegg og bringuhár!
Er þetta ekki það sem mætti kalla Mugison-væðingu karlmanna?
Allt skárra en andskotans bjarnabófahíungurinn.
























