Heba Þórisdóttir farðaði Kristen Wiig fyrir Golden Globe
Bridesmaids-leikkonan geislaði á Golden Globe-verðlaununum og getur þakkað Hebu Þórisdóttur förðunarmeistara því hún farðaði hana. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Heba meðhöndlar stjörnurnar því hún hefur búið í Los Angeles í áratugi. Þess má geta að hún er mágkona Sigurjóns Sighvatssonar en eiginkona hans, Sigríður Þórisdóttir og Heba, eru systur.
Vefmiðillinn makeherup.com greinir frá því að Heba hafi farðað Wiig og glóði hún eins og demantur á Golden Globe-verðlaununum sem haldin voru í 69. skipti. Útlit hennar var náttúrulegt og segir Heba í samtali við vefinn að hún hafi lagt áherslu á ferskleika, fallega húð og löng augnhár. Hún notaði púðurfarðann Hourglass sem þykir mikið undraefni. Hann er án parabena og annarra aukefna og sléttir úr hrukkum.
Húðin:
Heba byrjaði á því að bera SKII Signature Moisturizing krem á andlit Wiig. Því næst setti hún Sensai Silk Brightening kremið á andlit hennar en það fær húðina til að glóa sérstaklega vel. Þá bar hún undirkremið Hourglass Veil Mineral á andlitið. Það er víst bráðnauðsynlegt þegar farið er á rauða dregilinn því það kemur svo vel undan öllum myndavélaflössunum.
Farði: Heba notaði eins og fyrr segir farðann frá Hourglass sem heitir Immaculate Liquid. Hyljarinn er einnig frá Hourglass.
Andlit: Heba notaði kinnalitasett frá Hourglass til þess að skyggja andlitið, lýsa upp ákveðin svæði og dekkja önnur. Auk þess notaði hún ferskjulitaðan kinnalit frá MAC.
Augu: Heba notaði pensil frá Hourglass sem fyllir upp í fínar línur í kringum augun. Wiig var förðuð með augnskugganum Quad in Golds frá D&G. Þar sem Wiig er með virkilega flott og löng augnhár bar hún maskara frá Hourglass á hana til að ýkja þau.
Varir: Heba notaði varalitablýant frá D&G til að gera varirnar þrýstnar og flottar. Varaliturinn Fable frá Hourglass var borinn á varirnar og svo var gloss frá Hourglass sett yfir til að gera þær ennþá flottari og kyssilegri.
























