Vintage-hár og rauður varalitur
Drottningarnar á Golden Globe-verðlaununum virðast vera undir nokkrum Mad Men-áhrifum ef marka má allan rauða varalitinn sem þær báru á sig fyrir kvöldið. Rauðar varir eru þó ekki það eina sem var áberandi á rauða dreglinum á Golden Globe þetta árið því ný hárgreiðsla var kynnt til sögunnar. Um er að ræða uppgreitt hár sem minnir á hártísku fyrri tíma. Í flestum tilfellum var hárið krullað áður en það var sett upp. Svo var hárinu skipt til hliðar og það tekið saman í hnút, helst á hliðinni.
Kate Winslet „púllaði“ greiðsluna vel og fengu rándýru eyrnalokkarnir hennar að njóta sín vel. Leikkonan Melanie Griffith mætti einnig með svipaða greiðslu. Mila Kunis var með hárið slétt áður en hnúturinn var settur neðarlega í hnakkann og það sama má segja um hárgreiðslu Natalie Portman. Glee-stjarnan Lea Michele tók svipaðan snúning á hárið og hinar fyrrnefndu og það gerði einnig Angelina Jolie nema hún skipti hárinu ekki í hliðinni heldur var það tekið beint aftur.
Eins og sést á myndunum er þessi greiðsla þokkafull og hægt að leika sér endalaust með hana og fara með hana í margar áttir. Það eina sem þú þarft að hafa við höndina er krullujárn, teygja, litlar spennur og hárlakk.
























