Klessumaskari er málið

Klesst augnahár eru nýjasta tískan í augnförðun. stækka

Klesst augnahár eru nýjasta tískan í augnförðun. mbl.is/Cover Media

Hingað til hefur það þótt merki um lélegar snyrtivörur og hroðvirknisleg vinnubrögð að ganga um með þykkt lag af maskara og augnahárin öll í flækju en ekki lengur. Klesst augnahár eru komin í tísku.

Flottast þykir að hafa augnahárin löng og maka á þau þykku lagi af  maskara, þannig að hárin flækist saman og minni helst á slys.

Hönnuðirnir MaxMara og Alberta Ferretti eru í hópi þeirra fjölmörgu sem fallið hafa fyrir nýja útlitinu og birtast fyrirsætur nú á tískuljósmyndum þeirra með klessumaskara.

Aðferðin: Notaðu augnahárabrettara til að bretta augnahárin upp eins mikið og mögulegt er. Veldu þvínæst maskara með stærsta bursta sem þú finnur. Berðu svo maskarann á augnahárin aftur og aftur og láttu þorna á milli, þar til komið er þykkt lag. Mundu að bursta hárin vel og vandlega upp og niður og til hliðanna á milli laga, þannig að þau klessist rækilega.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Ljómaðu í rigningunni

Sólarpúðrið frá Chanel er röndótt og því hægt að stýra hversu mikið og dökkir litir ...
25.5. Sólarpúður hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár. Það er kannski ekkert skrýtið þar sem kvenpeningnum veitir stundum ekki af smáljóma í andlitið í rigningunni og rokinu. Meira »

Ilmaðu eins og vorsins blóm

Ilmvatnslínan Flora by Gucci er duðdómlega vel lyktandi og falleg.
17.5. Það væri óskandi að það væri hægt að finna lykt í gegnum tölvuskjáinn því þá mynduð þið skilja fullkomlega nýju ilmvatnslínuna frá Gucci. Meira »

Nýju sumarlitirnir frá OPI

Hot and Spicy.
18.5. Svarta shatter-naglalakkið fullkomnar verkið.  Meira »

Aðhaldshandleggir nýjasta nýtt

Aðhaldshandleggir.
16.5. Nú er ný aðhaldsflík komin á markað sem grennir handleggina svo um munar.   Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is