Smartland Mörtu Maríu
|
Útlit
| mbl
| 24.1.2012
| 14:43
| Uppfært
8.2.2012
14:16
Verndaðu húðina í vetrinum
Mynd 1 af 1
Shea butter andlitskremið frá L'Occitane er ríkt af vítamínum og verndar húðina. mbl.is/L'Occitane
Konur í V-Afríku hafa í gegnum tíðina notað shea butter til að vernda húð sína gegn skaðlegum umhverfisáhrifum.
Shea butter hefur að geyma einstaklega verndandi og nærandi eiginleika og er orðið lykilinnihaldsefni í mörgum snyrtivörum. Vörurnar í shea butter-línunni frá L'Occitane innihalda óvenjuhátt hlutfall af shea butter sem er ríkt af A- og E-vítamíni og fitusýrum sem hjálpa til við að styrkja frumuhimnur húðarinnar og því nærir þetta náttúrulega fegrunarsmyrsl húðina fullkomlega og gerir hana mjúka.
Í shea butter-línunni er til dæmis dagkrem sem er afar gott að nota þegar íslenski veturinn er upp á sitt besta, rakagefandi undirkrem, andlitsvatn og handáburður.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin

















