Húðflúrið ergir nýja kærastann

Mynd 1 af 2
Eva Longoria með húðflúrið Nine, leikmannatölu fyrrum eiginmannsins. REGIS DUVIGNAU
mbl.is Bergljót Friðriksdóttir beggo@mbl.is

Eva Longoria er enn með húðflúr tileinkað fyrrverandi eiginmanninum, körfuboltakappanum Tony Parker. Húðflúrið fer mjög í taugarnar á nýja kærastanum Eduardo Cruz og ætlar leikkonan nú að láta fjarlægja það með hjálp leysitækni, að því er fram kemur á vef þýska tímaritsins Spiegel.

Longoria skildi við Parker á síðasta ári eftir að sögusagnir komust á kreik um að hann hefði reynst henni ótrúr. Á meðan allt lék í lyndi lét leikkonan húðflúra leikmannatölu Parkers, Nine, aftan á hálsinn og á hægri úlnlið lét hún húðflúra brúðkaupsdaginn þeirra 7. júlí 2007 með rómverskum tölum, VII VII MMVII.

Eftir skilnaðinn skrifaði Longoria twittervinum sínum að hún væri enn með gamla húðflúrið en nú virðist hún vera komin á þá skoðun að best sé að losa sig við það, enda nýi kærastinn, sem er bróðir leikkonunnar Penelope Cruz, mjög óhress.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Ljómaðu í rigningunni

Sólarpúðrið frá Chanel er röndótt og því hægt að stýra hversu mikið og dökkir litir ...
25.5. Sólarpúður hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár. Það er kannski ekkert skrýtið þar sem kvenpeningnum veitir stundum ekki af smáljóma í andlitið í rigningunni og rokinu. Meira »

Ilmaðu eins og vorsins blóm

Ilmvatnslínan Flora by Gucci er duðdómlega vel lyktandi og falleg.
17.5. Það væri óskandi að það væri hægt að finna lykt í gegnum tölvuskjáinn því þá mynduð þið skilja fullkomlega nýju ilmvatnslínuna frá Gucci. Meira »

Nýju sumarlitirnir frá OPI

Hot and Spicy.
18.5. Svarta shatter-naglalakkið fullkomnar verkið.  Meira »

Aðhaldshandleggir nýjasta nýtt

Aðhaldshandleggir.
16.5. Nú er ný aðhaldsflík komin á markað sem grennir handleggina svo um munar.   Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is