Kemst langt á sjálfstraustinu

Mynd 1 af 2
Ásta Dís Óladóttir framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar.

Ásta Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, segist eiga erfitt með að koma sér í form því það séu svo miklar freistingar í vinnunni og svo sé maðurinn hennar svo góður kokkur.

Hvað gerir þú til að halda þér í formi? „Ég kom mér af stað aftur eftir sex mánaða hlé í desember. Hver byrjar á súperform-námskeiði fimm sinnum í viku rétt fyrir jól? Það er bara brjálæði. Í dag æfi ég í World Class í Mosfellsbæ tvisvar til fjórum sinnum í viku, undir harðstjórn Sigrúnar. Þar er ég í frábærum félagsskap kvenna sem kalla sigSúperhottís, en ég á langt í land ennþá. Á sumrin heilla útiveran og veiði mig mun meira en líkamsræktarsalur.“

Hvaða æfingar stundar þú og á hvaða tíma dags? „Ég er alltaf seinni partinn, enda erfitt að koma æfingum inn á öðrum tíma dags þar sem ég bý í öðru sveitarfélagi en ég starfa í og tæpir tveir tímar á hverjum degi fara í akstur til og frá vinnu.“

Ertu hætt að borða eitthvað sem þú borðaðir áður? „Ég hætti að drekka gosdrykki fyrir rúmu ári og hef reynt að halda í við mig með sælgæti. Það er bara ansi erfitt verandi í því starfi sem ég er í, þar sem stöðugt er verið að kynna fyrir okkur nýjar vörur. Það þykir ekki alveg við hæfi að smakka á sælgæti og spýta svo líkt og gert er við áfengi.“

Hvað borðar þú þegar þú vilt dekra við þig? „Það er humar eða hreindýr. Maðurinn minn er einn besti kokkur sem ég hef kynnst og hann sér alveg um þá hlið á heimilinu þegar kemur að góðum mat. Kannski þess vegna næ ég aldrei að koma mér í almennilegt form.“

Hvað gerir þú til að líta betur út? „Ég reyni að hugsa vel um útlitið. Ég leyfi mér að fara reglulega í klippingu og þá til besta hárgreiðslumeistarans, Þurýar á Ónix. Hún er dekrið mitt, sem og litun og plokkun hjá Rúnu systur í Keflavík.“

Besta leynitrixið? „Ég hef lært það í gegnum árin að það að vera sátt við sjálfa mig er aðalatriðið. Sjálfstraust er mikilvægt og við þekkjum það öll að bros getur breytt deginum hjá þeim sem við hittum. Við megum heldur ekki gleyma að hrósa hvert öðru, það eru alltaf einhver tilefni til þess. Því myndi ég segja að jákvæðni, að vera sátt við sjálfa sig og það að kunna að meta það sem maður hefur hverju sinni sé lykillinn að vellíðan og þá betra útliti.“

Hvað er að finna í snyrtibuddunni þinni? „Snyrtibuddan mín er á rúi og stúi um þessar mundir, alltof mikið í henni. Ég er aldrei með neitt nema ilmvatn í töskunni, snyrtibuddan bíður heima. Í desember féll ég fyrir Abercrombie & Fitch-ilmvatninu, eftir að hafa verið með Guilty by Gucci í u.þ.b. tvö ár, er mjög hrifin af því. ELLA-ilmvatnið er líka notað, en þá meira spari.“

Hvað finnst þér um fegrunaraðgerðir? „Ég hef ekkert á móti fegrunaraðgerðum ef fólki líður betur með það. Hver veit nema ég þyrfti á einni slíkri að halda einn daginn, svo!“

Þekkir þú einhverja manneskju sem hugsar ekki um útlitið? „Eflaust er til fullt af fólki sem hugsar ekkert um útlitið, en nei, það eru allir svo asskoti huggulegir í kringum mig.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Ljómaðu í rigningunni

Sólarpúðrið frá Chanel er röndótt og því hægt að stýra hversu mikið og dökkir litir ...
25.5. Sólarpúður hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár. Það er kannski ekkert skrýtið þar sem kvenpeningnum veitir stundum ekki af smáljóma í andlitið í rigningunni og rokinu. Meira »

Ilmaðu eins og vorsins blóm

Ilmvatnslínan Flora by Gucci er duðdómlega vel lyktandi og falleg.
17.5. Það væri óskandi að það væri hægt að finna lykt í gegnum tölvuskjáinn því þá mynduð þið skilja fullkomlega nýju ilmvatnslínuna frá Gucci. Meira »

Nýju sumarlitirnir frá OPI

Hot and Spicy.
18.5. Svarta shatter-naglalakkið fullkomnar verkið.  Meira »

Aðhaldshandleggir nýjasta nýtt

Aðhaldshandleggir.
16.5. Nú er ný aðhaldsflík komin á markað sem grennir handleggina svo um munar.   Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is