Þjáist af aldursþráhyggju

Mynd 1 af 2
Demi Moore. NAVESH CHITRAKAR

Það virðist vera erfiðara að eldast í Hollywood en á öðrum stöðum í heiminum. Þokkadísin Demi Moore hefur alltaf þótt með þeim fegurri en í seinni tíð virðist aldursþráhyggja herja á hana.

Moore, sem er 49 ára, var útskrifuð af spítala í vikunni en hún þurfti meðferð vegna ofþreytu. Einhverjar sögusagnir hafa líka verið í gangi þess efnis að hún þjáist af lystarstoli.

Heimildarmaður sagði í samtali við vefmiðilinn RadarOnline að Moore væri með æskuþráhyggju.

„Það er ekkert leyndarmál að Moore hefur barist við aldursþráhyggju. Hún er stórglæsileg og ætti ekki að hræðast hækkandi aldur.“

Það virðist ekki hafa hjálpað Moore að eiga mun yngri eiginmann og eftir að hún skildi við hinn 33 ára gamla Ashton Kutcher hefur hún ekki átt sjö dagana sæla.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Ljómaðu í rigningunni

Sólarpúðrið frá Chanel er röndótt og því hægt að stýra hversu mikið og dökkir litir ...
25.5. Sólarpúður hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár. Það er kannski ekkert skrýtið þar sem kvenpeningnum veitir stundum ekki af smáljóma í andlitið í rigningunni og rokinu. Meira »

Ilmaðu eins og vorsins blóm

Ilmvatnslínan Flora by Gucci er duðdómlega vel lyktandi og falleg.
17.5. Það væri óskandi að það væri hægt að finna lykt í gegnum tölvuskjáinn því þá mynduð þið skilja fullkomlega nýju ilmvatnslínuna frá Gucci. Meira »

Nýju sumarlitirnir frá OPI

Hot and Spicy.
18.5. Svarta shatter-naglalakkið fullkomnar verkið.  Meira »

Aðhaldshandleggir nýjasta nýtt

Aðhaldshandleggir.
16.5. Nú er ný aðhaldsflík komin á markað sem grennir handleggina svo um munar.   Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is