Smartland Mörtu Maríu
|
Útlit
| Cover Media
| 4.2.2012
| 12:00
Nýtt andlit Shisheido
Jennifer Connelly er nýtt andlit japanska snyrtivöruframleiðandans Shisheido. Leikkonan fagra hefur verið aðalfyrirsæta Shisheido í Asíu en tekur nú við sem nýtt andlit fyrirtækisins á heimsvísu.
Í viðtali á vef WWD, Women´s Wear Daily, kveðst leikkonan himinlifandi yfir samstarfinu. Segir hún mikinn heiður að fá að vinna nánar með japanska fyrirtækinu og bjóðast tækifæri til að kynna um allan heim nýju húðlínuna Future Solution LX.
Hiroshi Maruyama, yfirmaður alþjóðamarkaðsmála Shisheido, á ekki orð til að lýsa ánægju sinni yfir því að vinna með Connelly en fyrirtækið var sett á fót árið 1872 og fagnar því 140 ára starfsafmæli sínu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























